Hótel Höfðabrekka

stendur við þjóðveginn skammt fyrir austan Vík í Mýrdal. Þar er landslag fagurt og stórbrotið, há fjöll og jöklar sem og eyðisandar og sjálft úthafið, mikilúðlegir hamrar og grænar vinjar. Fuglalíf er afar fjölskrúðugt í hömrum og á söndum við sjóinn. Löngum hefur verið vel búið á Höfðabrekku og á fyrri tíð sátu þar oft fyrirmenn. Kirkja var á staðnum frá fornu fari og á kaþólskri tíð var hún helguð Ólafi helga Noregskonungi. Síðasta kirkjan fauk árið 1920 og var formlega aflögð 1929. Bærinn stóð á fyrri tíð á sléttlendi fyrir framan Höfðabrekkuhamra, en í miklu Kötlugosi og jökulhlaupi 1660 eyðilagðist bærinn. Sagt er að framburðurinn hafi verið svo mikill að þar hafi verið komið þurrlendi að morgni sem var 20 faðma sjávardýpi kvöldið áður. Eftir þetta var bærinn fluttur upp á heiðina og stóð þar fram til ársins 1964, er hann var byggður upp fyrir neðan Höfðabrekkuháls. Í hömrunum austur af bænum er Skiphellir og var þaðan útræði fyrrum. Frægur kvendraugur, Höfðabrekku-Jóka, er kennd við staðinn. Þótti hún illskeytt og gerði skaða þar til frómur prestur á 17. öld kom henni loks niður.

Ferðaþjónusta bænda

Afþreying í næsta nágrenni

Sendu okkur fyrirspurn Veftré Stækka letur Minnka letur