Ýmis afþreying er í boði á svæðinu. Á hótelinu sjálfu er auk heitu pottana boðið upp á stangveiði og einnig eru ýmsar skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi hótelsins.
Í nágrenni við hótelið er, t.d, hægt að skella sér í bátsferð á hjólabáti við Dyrhólaey, fara í hestaferðir, þeysa á snjósleða eða hundasleða um Mýrdalsjökull, fara í ísgöngu á Sólheimajökli skella sér í golf á golfvellinum í Vik eða bara njóta útiverunnar á þessum fallega stað. -Velkomin á Hótel Höfðabrekku!
Hér er hægt að ná sé í nánari upplýsingar.
Snjósleðaferðir
Siglingar
Golf


