Deutsch English

Hótel Höfðabrekka


21.5.2008 15:02

Hótel Höfðabrekka er vinalegt sveitahótel í hinu margrómaða og fallega umhverfi Víkur í Mýrdal. Það er við þjóðveg 1, um 5 km austan við Vík. Hér eru 62 vel búin tveggja manna herbergi með baði og sjónvarpi. Veitingastaðurinn tekur allt að 200 manns í sæti þar sem við bjóðum gestum upp á ljúffengt kvöldverðarhlaðborð yfir sumartímann. Gestgjafarnir á Höfðabrekku hafa ætíð lagt áherslu á trausta og persónulega þjónustu, góðan mat og vinalegt umhverfi í veitingasal sínum.

Heitir pottar eru við hótelið þar sem notalegt er slaka á og njóta kyrrðarinnar. Hótel Höfðabrekka er kjörinn staður fyrir starfsmannahópa að halda árshátíðir eða fyrir ráðstefnur. Ýmis afþreying er í boði á svæðinu. Á hótelinu sjálfu er auk heitu pottana boðið upp á stangveiði og einnig eru ýmsar skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi hótelsins.

Í nágrenni við hótelið er, t.d, hægt að skella sér í bátsferð á hjólabáti við Dyrhólaey, fara í hestaferðir, þeysa á snjósleða eða hundasleða um Mýrdalsjökull, fara í ísgöngu á Sólheimajökli skella sér í golf á golfvellinum í Vik eða bara njóta útiverunnar á þessum fallega stað.
-Velkomin á Hótel Höfðabrekku!

Aðstaðan hjá okkur!

20.5.2008 15:25

Hótel Höfðabrekka býður 62 vel búin tveggja manna herbergi með baði og 3 herbergi án baðs. Á hótelinu er og veitingastaður sem tekur allt að 250 manns í sæti og koníaksstofa með notalegum sófum.

Eldunaraðstaða er í boði fyrir þá sem vilja elda sjálfir og stórt útigrill er á staðnum.
Heitir pottar eru við hótelið þar sem notalegt er slaka á og njóta kyrrðarinnar. Hótel Höfðabrekka er kjörinn staður fyrir starfsmannahópa að halda árshátíðir eða fyrir ráðstefnur.


Ferðaþjónusta bænda

Afþreying í næsta nágrenni